Ballerina

Auglýsing

Könnun

Ertu villdýr í rúminu??

Hvað er síðan gömul

Innskráningar kubbur

Kvart og kvein.

06. nóvember 2007 klukkan 23:42
Ji minn eini hvað það á bara að drepa mann í menntaskóla í dag!... DAUÐI

Jæja... nú er vinnu minni lokið á Hótel Stykkishólmi í bili. Síðustu helgi var ég að vinna frá 14:00 - 04:00, það tók verulega á en það var árshátíð Stykkishólmsbæjar.. djöfull geta hólmarar drukkið!!
Kom heim þar sem Steini var sofanður þannig ég rotaðist um leið!
Á sunnudeginum sváfum við til fjögur takk fyrir.. við vorum hvorug að nenna að vakna en svo færðum við okkur yfir í sófann;) haha .. ákvað svo að skrópa í skólann á mánudeginum .. það var bara kósý legið uppí rúmi til klukkan tvö og svo brunuðum við Bergrós í bæinn á hundrað og sjötíu!

Það er búið að rífa eiginlega allt niður á fallega hótelinu mínu! En það verður ekkert smá gaman að sjá útkomuna!! Það á að umturna ÖLLU hótelinu! veió.. núna er verið að gefa rúm útaf herbergjunum svo ef ykkur vantar rúm fara uppá hótel og fá sér eitt stykki;).

Steini farinn á sjóinn á fimmtudaginn .. ég dey bara! Þetta verður ekkert smá skrítið .. en vonandi verður hann heima öll jólin .. voooonandi ! Annars er Ólöf búin að lofa mér að rúnta, éta nammi og gráta með mér milli jóla og nýárs! Já þá er sko í lagi að éta nammi! klááárlega.

Engin vinna fyrr en í febrúar.. hvernin á ég að geta lifað? .. haha .. ég eyði meira en meðalmanneskja á mánuði .. þetta verður spes.. þurfa að eiga fyrir öllum jólagjöfum!..
Ég er búin að ráða mig í vinnu næsta sumar.. á engum öðrum stað en Hótel Stykkishólmi... kemur það ekki á óvart??;) María alltaf að hvetja mig til þess að flytja í hólminn og byrja með dansnámskeið þar.. en það eina sem er að stoppa mig er dansinn .. ekki neitt annað .. væri sko meira en til í að losna úr þessum skóla....

Jæja.. ætla að fara að halda áfram að læra.. sem ég er búin að vera að gera í allan dag! helv...

Aþena Eydís Sjómannskerling kveður:)

Luva þig mest!

Dance is the mother of all arts

05. október 2007 klukkan 00:38

Skólagleði [leiði]!!

Gleði: Að dansa alla daga!
Höfuðverkur: Próf, próf, próf!
Lag: Amerie - I just died

Tilkynningar

Dísel gallabuxur.
Dísel gallabuxur (dökkbláar)voru teknar í misgripum í leikfimiklefa í síðust viku. Vinsaml. skilið á skrifstofu.

Snyrtibudda í óskilum á skrifstofu.

Týpískur Verzló? Þetta stóð allavega uppá tilkynningaskjá í dag!? Hvað er að gerast?
Annars er ekki mikið að frétta héðan. Er alveg við það að láta reka mig úr skólanum... fyrir lélega MÆTINGU! Hvaða rugl er það.

Búin að vera meira og minna bara í skólanum og auðvitað á æfingum!
Þessi önn  [í dansinum ekki skóla] er búin að vera meiriháttar. Okkur er búið að fara svo mikið fram síðan við byrjuðum þótt þetta sé bara fimmta vikan! Ég verð bara að hrósa Ingu Maren fyrir vel unnin störf!;) Annars fékk ég að vita í dag að ég komst áfram í þriðju og síðustu dansprufurnar sem verða haldnar þarnæstu helgi! Eins og þið sjáið er ég í skýjunum í dansinum:).
Eftir æfingu áðan fórum við stelpurnar í sund í rigningunni og gufu .. við ákváðum að gera þetta að næstum daglegum lið hjá okkur!

Fór í hólminn á laugardaginn og var í hálfan sólarhring svo á sunnudagskvöldinu kom Steini til mín og við höfðum bara kósý á mánudeginum ákvað ég svo að keyra Steina og Ólöfu í hólminn og fór ekki heim fyrr en á þriðjudagsmorgni! Takk fyrir kaffið María!;D

Hólmurinn svo á laugardaginn! Ólöf og María ég ætla að búa hjá ykkur! Hahah:D. Verð að vinna sem þjónn og svo á barnum um nóttina skilst mér. Og svo verð ég lobbýfdama eins og mér einni er lagið á sunnudeginum!

Viktoría ég sakna þín þú býrð í næsta húsi kerling! Við erum latar.....

Kveð að sinni,
Besos!
Aþena Eydís

Mig langar að læra þennan dans!
http://www.youtube.com/watch?v=NWpEuHrLRKU

Reykjavík....

27. ágúst 2007 klukkan 21:34
Jæja... þá er víst þetta ævintýri mitt á enda....

Þetta sumar er án efa búið að vera eitt af því besta sem ég hef upplifað. Hef lært margt og kynnst svo mörgu góðu fólki. Frábært alveg. Vil bara þakka Ólöfu, Maríu og Ásgeiri fyrir mig, þrátt fyrir að ég hafi nú ekki verið mikið heima eftir fyrstu vikuna=).

Verzlunarmannahelgin var frekar spes þetta árið, en það var djammað á fös. og laug. en á sunnudeginum sjálfum var farið í Purrkey nokkur saman á tvemur - þremur bátum og þar var sungið og haldin brenna o.fl. Á leiðinni heim vorum við svo um tíu á bátnum haha það var troðið og Gummi Amelín að sprengja sína flugelda um borð. þegar við komum í land beið svo löggan eftir okkur en við þóttumst ekki kannast við neitt!:D

Danskir dagar voru æði. Á laugardeginum fór ég í matarboð til Steina og þar voru Lilla systir hans og Emil maðurinn hennar. Fórum svo að sjá flottustu flugeldasýningu sem ég hef séð!! Hún var geggjuð. Fór svo frekar snemma heim [uppá hótel] að tala við Bjössa husband! Vorum þarna að kvarta og kveina hehe og skræla egg! voooða gaman alveg.

Um helgina fór ég svo aftur í hólminn og var mikið með Gintaré minni sem leiðist örugglega alla daga..... En á sunnudeginum fórum við Steini hringinn í kringum snæfellsnes og hefðum við ekki getað fengið betri dag!! Veðrið var æðislegt. Fengum okkur hressingu á æðislegum stað Hellnum. Og fórum að skoða djúpalónssand og margt fleira auðvitað .. svo lagði ég af stað heim um miðnætti!

Mig langar aftur í hólminn! Hélt að ég og Ólöf myndum fá leið á hvor annari eftir svona viku en neinei ,. held að ég hafi hitt hana svo lítið í allt sumar að það var ekki hægt að fá leið á hvor annari.. En þú ert æði Ólöf og mér þykir endalaust vænt um þig.

Næsta helgi verður örugglega með síðustu helgum sem ég fer i hólminn þar sem næsta mánudag byrja ég í dansinum og já það verður stíft prógram .. æfingar níu sinnum í viku, en það verður bara gaman að takast í við svona verkefni!=)

Skal reyna að vera duglegri að pára hérna.
-Aþena Eydís

Bloggleysi!?

18. júlí 2007 klukkan 03:00

Jæja já!

Langt langt langt síðan ég hef bloggað .. kann eiginlega ekkert að blogga lengur.. eitthver kenna mér.. ?

Allavega get ég ekki sagt annað en að lífið er æðislegt hérna í hólminum... Búum hérna tvær í draumaíbúð sem Herdís og Óli eiga, en þau er á Marmaris koma reyndar aftur á laug. en það er annað mál! ég var frekar treg til að koma í rvk síðustu helgi en Ólöfu tókst að sannfæra mig:D..[aðeins í hálfan sólarhring þó]

Siðustu vikur hef ég bara verið að vinna.. skellti mér á Írska daga eina nótt á akranesi get ekki sagt annað en að Bubbi hafi sko staðið fyrir sínu!! og svo var bara vaknað eldsnemma og keyrt í hólminn í vinnuna!

Á fimmtudaginn í þar síðustu viku fórum við Steini og Hampus í stórborgina - reykjavík! Þar náði ég alveg að eyða litlum 25000 krónum. Fórum svo út að borða á Red Chili .. ferlega kósí staður :D .. og svo var kíkt á prikið og fengið sér kaffi í eftirrétt og svo bara haldið heim í hólminn..

Í síðustu viku fór ég m.a. með Steina niðrá bryggju að veiða, það var mikið hangið uppá hóteli - Bogga var næturvörður þessa vikuna;) .. og já mikið spjallað og drukkið öl okkur til skemmtunar!

á föstudeginum fórum svo ég, Hampus og Gintare heim til mín og vorum að spjalla um margt fróðlegt! Reynslur og annað haha og héldum svo niðrá Narfeyrarstofu og svo var farið á Fimm Fiska þar sem var trúbador! mjög kósí .. kvöldið endaði frekar illa með rifrildum hjá okkur Hampusi ..fór þá bara niður og horfá Seinfeld og kúra. En svo sættumst við daginn eftir og ákváðum að halda drykkjunni í hófi.

Á laugardeginum var sko skemmtilegt djamm með stelpunum mínum LOV á ykkur:* fórum í afmælisparrtý hjá Steinunni listó og fl. koma vonandi myndir brátt:D

Á sunnudeginum eyddi ég aftur litlum 20 kalli.. í föööööt:D .. kom svo heim að vinna brjááálað að gera um kvöldið en eftir vaktina fórum við steini svo útá sjó að veiða .. var svo fallegt veður!:D

Svo þegar ég kem aftur í bæinn þá flyt ég kannski inn til Boggu en hún á sína eigin íbúð rétt hjá Verzló .. já mín bara farin að búa ein hægri vinstri.. er komin með pínku leið á að búa heima og geta ekki bara ..jáá labbað um nakin þegar ÉG vil:D haha..

Viktoría, Esther, María og Ellen til bene á fimmtudaginn .. skemmtið ykkur píur.. ekki missa ykkur í Sex on the Beach;)..haha

En er farin að sofa.. klukkan er late!
Góða nótt elskur:*
-Aþena Eydís sem hefur ákveðið að gerast súludansmær! haha

p.s. nýjar myndir;)

Drullugaman:D

23. júní 2007 klukkan 10:46
Jæja.. þar sem að ég er búin að gera upp hótelið í dag og svara öllum meilum er smá pínku dauður tími hjá mér og mér leiðist !! er - þreytt, þunn og mygluð!

Heyrðu segja ykkur aðeins hvað er búið að vera að gerast í mínu lífi undanfarið:D
Ég hitti Ólöfu ekki rassgat haha.. við förum eitthvert til skiptis og aldrei heima á sama tíma! En ég get þó huggað mig við það að ég fæ að kúra með henni öll kvöld!;) haha

Síðasta helgi var án efa ein sú besta sem ég hef upplifað! Ég var helling með Dóru á föstudeginum, svo var ég með Ýr oooog auðvitað fundum við uppá mörgu skemmtilegu! Eins og í gamla daga einsog maður segir! En svo drapst Ýr og þá var ég bara með Tedda og Arnari að grallarast eitthvað til klukkan fjögur um daginn!!!! Vaknaði sjö um kvöld.. ennþá bliiiind...! hahah:D Takk fyrir góða helgi krakkar mínir!


Hér er ég handleggsbrotin en ég var það einmitt í um hálftíma!:D haha

Á fimmtudaginn síðasta var ég að vinna til tíu, fórum svo úr vinnunni ég, Steini, Bogga og Christin.. við steini fengum okkur öl en datt svo alltí einu í hug að fara útá sjó útaf góða veðrinu! ...við fjögur skelltum okkur auðvitað og Kristján Lár og Björn tróðu sér uppá okkur:D.. Svo stoppuðum við útá sjó og ég fór að veiða ! OG ÉG VEIDDI FISK!! það var ógeð, þar sem Kristján þurfti að skera hann í sundur og kasta einum og einum bita fyrir ljótu fuglana!
Eftir sjóferðina ákváðum við að kíkja til Steina een það var stutt stopp því við fórum heim til Kristjáns í sumarbústaðinn hans:D.. og vorum orðin alveg góð á því! haha svo var bara haldið í rúmið!

Í gær Var ég að vinna! [kemur á óvart] .. drullu leiðinlegt kvöld, sem leið ekki neitt! En við björguðum því! haha fórum að ná í tölvuna hennar Boggu svo ég og Steini gætum horft á Guðmund í byrginu Iron Masterinn sjálfan! þar sem við vorum ekki búin að sjá þetta! Sátum tvö og grenjuðum úr hlátri! Þetta er það ógeðslegasta sem ég hef á ævi minni séð! Oj bara...
Eftir vinnu fórum við heim til Steina og vorum þar að drekka ööööl. Fórum svo á Narfeyrarstofu og vorum þar til lokunar, kynntist nokkrum þar! Nema auðvitað Steini sem stingur alltaf af! Lét svo HEITU lögguna skutla mér heim! hahah leið einsog fanga, en það var þess virði!;)

Ég er búin að vera drulludugleg að borða bara hollt og búin að kaupa mér kort í ræktina og gjörsamlega bara búa þar:D.. það er mjög gaman!

Sex dagar í nýja SÆTA svíann sem verður kokkur hér!!! GET EKKI BEÐIÐ! hahaha

Jæja ætla að fara að gera eitthvað í þessa 10 og hálfa tíma sem ég á eftir! [ég græt af sjálfsvorkunn]

Best regards,
Aþena Eydís



p.s. 6 dagar í ljóshært:O

20. júní 2007 klukkan 00:19
Women are like apples on trees.  The best ones are at the top of the tree.
Most men don't want to reach for the good ones because they are afraid of
falling and getting hurt.  Instead, they sometimes take the apples from the
ground that aren't as good, but easy.  The apples at the top think something
 is wrong with them, when in reality, they're amazing.  They just have to
wait
for the right person to come along, the one who is brave enough to climb all
the way to the top of the tree.

Now Men are like a fine wine.  They begin as grapes, and it's up to women to
stomp the shit out of them until they turn into something acceptable enough
to have dinner with.



Kveð með eina góða sem lýsir hversu skemmtilegt var hjá mér á akureyri;)

Mig vantar pössun fyrir barnið mitt!

15. júní 2007 klukkan 09:05
Ég er farin á akureyri eftir akkúrat 6 tíma!! já eða þá held ég leið minni uppí Borgarnes þar sem ég þarf að skilja barnið mitt eftir búhú:(...

Ef það er eitthver í borgarnesi sem vill passa barnið mitt þá má hann endilega bjóða sig fram:D

Fallegi bíllinn minn! haha

Heyrðu sé ykkur fersk eftir nokkra tíma á AKUREYRI!!!!!!!!
-Aþena Eydís

Akureyri vúhú!!

14. júní 2007 klukkan 14:16
Enginn þarf að vera Hurt því......!:D:D

BÍLADAGAR HERE I COME!!!

Sé ykkur á akureyri í góða veðrinu í fellihýsinu í lopanum og regnbuxunum með öllaran ávallt í hendi...
þetta er alvöru sko;)

-Aþena sem er svo glöð að hún er í skýjunum:D

p.s. Lolla þú ert lifesaver:***

Ólöf....

14. júní 2007 klukkan 01:19
Þetta er Ólöf:D


Hún er sæt:D...........mwúhahaha .. enda fæ ég að kúra með henni alla daga:D


og já btw. ég fer ekki á bíladaga... nenni ekki að redda mér fari :D...líka ball í hólminum;) hehe..

bleeeeeeeeeeeeessssss

Far anyone???

12. júní 2007 klukkan 17:33
Já mig vantar far til akureyrar næstu helgi :(.. eitthver redda mér fari :D:D:D

þurfið samt bara að þola mig frá Borgarnesi þar sem að ég keyri þangað frá stykkishólmi á pústlausa kagganum mínum! - þetta er ekta sko;)

og Ýr já það er brjálað djamm á Akureyri með þér!! þetta verður bilun.....

jæja er farin að borða ísinn sem steini kom með upp úr þurru :D haha

Vi ses!
Kveðja frá hólminum í sól og blíðu
Aþena Eydís


Hotel Stykkishólmur

AþenaEydís

  • Nafn: Aþena Eydís Kolbeinsdóttir
  • Staður: Stykkishólmur/Reykjavík
  • Atvinna: Hótel Stykkishólmur
  • Hjúskaparstaða: Föstu